Farfuglar 70 ára

Í ár eru 70 ár liðin frá stofnun Farfugla, en samtökin voru stofnuð 2. mars 1939.  Allt  frá stofnun samtakanna hafa Farfuglar  verið í fararbroddi íslenskrar  ferðaþjónustu en m.a. voru samtökin brautryðjendur á sviði hálendisferða og umhverfismála innan atvinnugreinarinnar. Farfuglar eru aðilar að alþjóðahreyfingu Farfugla, Hostelling International, sem á aldarafmæli í ár.

Frá upphafi hefur hlutverk Hostelling International og Farfugla  verið að stuðla að ferðalögum sem auka þekkingu fólks á umhverfinu, umhyggju fyrir náttúrunni og virðingu fyrir menningarlegu gildi borga og bæja í öllum heimshlutum. Til að vinna að þessu hlutverki sínu vinna Farfuglar að ýmsum verkefnum. Þar má m.a. nefna

  • Rekstur tveggja farfuglaheimila í Reykjavík
  • Farfuglar reka auk þess net 31 annars farfuglaheimils um allt land. Árlegur fjöldi gistinótta á íslenskum farfuglaheimilum er um 120.000 talsins
  • Veita upplýsingar um farfuglaheimili víðs vegar um heiminn
  • Rekstur Tjaldsvæðisins í Laugardal
  • Gistingu og veitingar í Húsadal í Þórsmörk 
  • Tjaldsvæði í Slyppugil í Þórsmörk
  • Ferðaskrifstofu í Reykjavík þar sem bóka má gistingu, bílaleigubíla og ferðir um land allt
  • Upplýsingagjöf og sölu félagsskírteina Farfugla

Afmælisins er minnst á margan hátt, m.a. var í mars haldinn hér á landi fundur framkvæmdastjóra aðildarþjóða Hostelling International en um 60 erlendir gestir sóttu fundinn.

Mikil aukning hefur verið í bókunum á afmælisárinu, bæði af íslendingum og erlendum gestum. Farfuglar byggja á traustum grunni og horfa bjartsýnir fram á veginn við þessi merku tímamót.

Senda grein


Farfuglar  Borgartún 6  105 Reykjavík
Sími 575 6700  Fax 553 0535  info@hostel.is
Copyright ©www.hostel.is - Allur réttur áskilinn.
IH-Kort