|
Félagsskírteini Farfugla
Félagsskírteinin gera ferðina þína ódýrari og skemmtilegri! Með því að sýna félagsskírteinið færðu bestu kjör á farfuglaheimilum hér á landi og rúmlega 5000 heimilum um allan heim. Auk þess veitir skírteinið afslátt á um 3500 stöðum sem tengjast ferðalögum og/eða ferðamennsku. Nánari upplýsingar um afsláttarkjörin finnur þú á vefsvæði Hostelling International undir HISavings. Athugið að víða erlendis er farfuglaskírteinið skilyrði. Sem utanfélagsmaður máttu a.m.k. alltaf búast við því að greiða 10-20% hærra verð en annars fyrir gistinguna. Skírteinin gilda í ár frá útgáfudegi. Viltu gerast Farfugl í ár? Við bjóðum þér tvær góðar leiðir:
- Pantaðu skírteinið þitt hér að neðan, greiddu og fáðu það sent í pósti. Það eru 3 tegundir skírteina að velja um:
- Komdu við í móttöku Farfuglaheimilana í Reykjavík (opið 8-23 alla daga). Skírteinin eru útbúin á meðan að þú bíður.
Ef þig vantar meiri upplýsingar og aðstoð varðandi skírteinin; er þér velkomið að hafa samband við skrifstofu Farfugla í Reykjavík: sigridur@hostel.is
Senda grein
|