|
Hvað eru Farfuglaheimili?
Almennt -
Á farfuglaheimilunum er lögð áhersla á „sjálfsþjónustu“ á sem flestum sviðum svo ferðakostnaður þinn verði í lágmarki. -
Engin tvö farfuglaheimili eru eins. Þau eru ýmist í nýlegu húsnæði eða gömlu endurnýjuðu húsnæði. Á öllum heimilunum nýtur þú góðrar og heimilislegrar þjónustu. -
 Gisting -
Gisting í 2ja - 6 manna herbergjum. -
Sæng og koddi innifalin í verði, þú kemur með sængurfatnað eða færð hann leigðan á staðnum. -
Gestir geta einnig notað svefnpoka. -
Öll heimilin (nema Fljótsdalur) bjóða sérstök fjölskylduherbergi. -
Góð hreinlætis- og snyrtiaðstaða en miðað er við að gestir leggi sjálfir til handklæði, sápu og annað þess háttar.  Gestaeldhús - máltíðir -
Á öllum farfuglaheimilum eru gestaeldhús með eldunar- og mataráhöldum sem gestir geta notað án endurgjalds. -
Flest heimilanna selja morgunmat og sum þeirra einnig matarpakka, hádegis- og/eða kvöldverð. -
Hádegis- og kvöldverð þarf oftast að panta fyrirfram.  Afþreying -
Veiði, hesta,- báts- og jöklaferðir, golf, fugla-, sela- og hvalaskoðun og sundlaugarferðir er meðal afþreyingarmöguleika sem unnt er að finna í nágrenni Farfuglaheimilanna -
Í nágrenni við flest heimilin eru fallegar gönguleiðir, mismunandi erfiðar.  Bókanir -
Gott er að panta gistingu fyrirfram á farfuglaheimilum, þó ekki skilyrði. -
Fjölskyldum sem vilja fá fjölskylduherbergi og hópum er þó ráðlagt að bóka ávallt fyrirfram. -
Senda grein
|