Á leið til útlanda

Ef þú ert á leið til útlanda og vilt halda ferðakostnaði í lágmarki, en njóta samt sem áður þæginda með fjölskyldu þinni eða vinum, þá eru farfuglaheimilin frábær kostur.

 

Hvar sem þú ert í heiminum eru farfuglaheimilin sífellt nálægt. Sem félagi í Farfuglum áttu möguleika á góðri ódýrri gistingu á yfir 5000 farfuglaheimilum í meira en 60 löndum um allan heim. Auk þess að veita bestu kjör á gistingu þá veita skírteinin einnig afslátt á um 3500 stöðum í 40 löndum. Allir þessir afslættir tengjast ferðalögum og/eða ferðamennsku.  Nánari upplýsingar um afsláttarkjörin eru á vefsvæði alþjóðastjórnar www.hihostels.com

 

Til að auðvelda leitina að farfuglaheimilum erlendis höfum við sett upp krækjur beint á farfuglaheimili í mörgum stórborgum heimsins. Einnig er að finna krækjur beint á heimasíður allra aðildarþjóða alþjóðasamtaka farfuglaheimilanna – Hostelling International.

 

Farfuglaheimili í stórborgum

Farfuglaheimili um allan heim

 

Á skrifstofu Farfugla er unnt að fá nákvæmar upplýsingar um öll farfuglaheimili sem starfrækt eru í heiminum í handbókum og bæklingum.

Senda grein


Farfuglar  Borgartún 6  105 Reykjavík
Sími 575 6700  Fax 553 0535  info@hostel.is
Copyright ©www.hostel.is - Allur réttur áskilinn.
IH-Kort
Handbók