Græn Farfuglaheimili
Til að hvetja rekstraraðila farfuglaheimila á Íslandi til að vinna markvisst að umhverfismálum ákvað stjórn Farfugla árið 2003 að þau farfuglaheimili sem uppfylla ákveðin viðmið á sviði umhverfismála fái heimild til að kalla sig Græn farfuglaheimili. Því til staðfestingar fá þau að nota umhverfismerki samtakanna. Þessi viðmið byggja á almennum gæðastöðlum  sem öll farfuglaheimili þurfa að uppfylla. Til að fá heimild til að nota umhverfismerkið þurfa heimilin auk þess að uppfylla ýmis viðbótarskilyrði sem tengjast umhverfismálum. Lögð er áhersla á að hér er ekki um viðurkennda umhverfisvottun að ræða heldur viðmið sem samtökin setja og hefur eftirlit með.

Á vormánuðum 2004 sóttu átta heimili um að fá heimild til að kalla sig "Grænt farfuglaheimili". Við úttekt kom í ljós að sjö þeirra uppfylltu skilyrðin. Þau eru farfuglaheimilin í Reykjavík, Grundarfirði, Ytra Lóni, Húsey, Seyðisfirði, Berunesi og á Laugarvatni. Um haustið 2007 bættust svo þrjú heimili í hópinn; Kópasker, Hvoll og Ósar. Þeta eru allt ólík heimili, hvert með sitt séreinkenni en eiga það sameiginlegt að vilja leggja sitt af mörkum við umhverfisvernd, og til að hjálpa gestum sínum að njóta umhverfisins og náttúrunnar. Grænu farfuglaheimilin hafa, í fjölbreytileika sínum, fundið leiðir til að vinna með umhverfi sínu og aðstæðum, auk þess að uppfylla þau viðmið sem farið er fram á við þá sem nota umhverfismerkið.

Her eru nokkur dæmi um virkt umhverfisstarf á heimilunum:

  • Á Berunesi eru ræktaðar kartöflur og þar er notast mikið við vörur af svæðinu. Þar eru göngustígar og gestir geta fengið göngukort þegar þeir fara í könnunarleiðangra um svæðið. Þar er vel fylgst með húshitun.
  • Á Grundarfirði geta gestir skilið eftir fatnað sem þeir nota ekki lengur ef þeir vilja létta töskurnar sínar. Fatnaðurinn fer síðan til Rauða Krossins þar sem hann öðlast framhaldslíf.
  • Gestgjafar á Laugarvatni hafa leitt visthópa á svæðinu, sem samanstanda af fólki sem vill gera heimilishald sitt vistvænna.
  • Á Seyðisfirði er skiptikarfa fyrir tau, þar sem gestir geta skilið eftir eða skipt út fatnaði og útbúnaði.
  • Á Ytra Lóni má sjá listilega gerða flísalögn úr afgangsflísum, og falleg notuð húsgögn. Þar er líka ræktað grænmeti í litlu gróðurhúsi.
  • Húsey er mikil náttúruparadís. Þar geta gestir tekið þátt í lífinu á bænum og vitjað silungsneta með bændunum. Þar er líka hægt að sjá seli í ósnum nálægt bænum.
  • Í Reykjavík er hægt að skilja eftir eða skipta út lesefni, eða njóta lítils en ört vaxandi bókasafns um umhverfismál. Þeir sem vilja kanna borgina geta leigt til þess hjól.
  • Á Kópaskeri, nálægt þjóðgarðinum í Ásbyrgi, er að finna gott bókasafn um jarðfræði, enda er svæðið afar áhugavert með tilliti til jarðfræði.
  • Á Hvoli fer allt brennanlegt rusl í brennara á Kirkjubæjarklaustri og orkan er notuð til að hita upp sundlaugina þar. Á Hvoli eru körfur fyrir hreinlætisvörur, svo þar eru gestir sem vantar sjampó eða þurfa að létta pokann sinn fyrir gönguferðir í góðum málum.
  • Á Ósum er yfir 1200 plöntum plantað árlega á landareigninni og hrossatað notað sem áburður. Á Ósum fer allur lífrænn úrgangur í jarðgerðartank.

Til baka... 


 

Senda grein


Farfuglar  Borgartún 6  105 Reykjavík
Sími 575 6700  Fax 553 0535  info@hostel.is
Copyright ©www.hostel.is - Allur réttur áskilinn.
IH-Kort