
|
Farþegar um Keflavíkurflugvöll 2009
11.1.2010 Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 1,7 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári. Þetta er um 16,7% fækkun á milli ára. Alls voru farþegar 1.658.419 á árinu 2009, samanborið við 1.991.338 farþega árið 2008. Fækkun var í öllum mánuðum ársins að desember undanskyldum þegar farþegafjöldinn var nánast sá sami. Líkt og verið hefur aðra mánuði ársins má búast við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Senda frétt
|