Hlaut nafnið Harpa

15.12.2009

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við hafnarbakkannn hefur fengið nafnið Harpa. Þetta var opinberað við hátíðlega athöfn í húsinu á föstudaginn. Það var Harpa Karen Antonsdóttir, 10 ára gömul stúlka, sem gaf húsinu nafnið.
Efnt var til samkeppni um nafn á húsið í febrúar í fyrra og létu viðbrögð ekki á sér standa. Alls bárust 4156 tillögur að nafni frá 1200 einstaklingum. 54 lögðu til að húsið fengi nafnið Harpa.


Senda frétt


Farfuglar  Borgartún 6  105 Reykjavík
Sími 575 6700  Fax 553 0535  info@hostel.is
Copyright ©www.hostel.is - Allur réttur áskilinn.
IH-Kort